| Your Japanese Name Is... |
![]() |
29.4.2005
26.4.2005
The queen of Wasteland
Ég er komin með vinnu!!! Fékk símtal í morgun frá Fergus, írskum vini Ullu, sem vinnur í second-hand búðinni Wasteland. Hann bað mig um að kíkja við og tala við Clint, gaurinn sem á búðina. Ég talaði við Clint og var ráðin á staðnum. Vííííííí. Var að vinna í dag við að taka upp nýjar og flottar vörur. Allir að kíkja í Wasteland í Studiestræde 5.
Ást og friður.

25.4.2005
Ég er flutt í höllina
Halló, gott fólk. Þá er hún Kamilla litla flutt inn í litla litla herbergið í stóru stóru íbúðinni. Helgin fór í þrif og ég skrúbbaði svo mikið að mér er enn illt í fingurgómunum. En fyrir vikið get ég borðað af klósettsetunni...
Ég er kannski kannski komin með herbergi í Árósum. Í fögru íbúðinni þar sem Diljá býr. Víííííí! Allir að krossa fingur.
Ég er ekki enn komin með vinnu en ég er sjúklegur atvinnuleysingi vegna þess að ég fór í klippingu í dag. Takk Birgitta!
Ég setti inn myndir af íbúðinni. Kíkið!

21.4.2005
18.4.2005
Líf mitt sem tilvonandi Kaospilot
Jæja, elskurnar, ykkur þyrstir líklega í frásögn af helginni miklu. Helginni sem var vendipunktur í lífi mínu og byrjun á einhverju sem ég veit að á eftir vera stórkostlegt. Ég ætla að gera þetta eins mér sæmir: á skipulagðan hátt.
Fimmtudagur:
Ég lagði spennt af stað frá Kaupmannahöfn kl. 13.57 að staðartíma. iPodinn á sínum stað og fiðrildi í maganum. Kl. 16.46 stoppaði lestin í Árósum. Matta ætlaði að koma og hitta mig á stöðinni kl. 17.20 þannig að til að drepa tímann skellti ég mér bara í H&M og keypti mér eitt stykki gullfallegan jakka. Eftir innkaupin komu elskurnar mínar Matta, Diljá, Svanhvít og Silla að sækja mig. Leiðin lá í Fötex að kaupa í matinn en ég var orðin svo svöng að mér var skapi næst að taka vænan bita af samferðakonum mínum. Um kvöldið var étið, drukkið og slúðrað. Félagsskapur af bestu gerð.
Föstudagur:
Klukkan 9 hófst vinnustofan. Ímyndið ykkur stað þar sem sólin skín og ungir eldhugar láta drauma sína rætast. 70 manns, alls staðar að, komnir til að láta ljós sitt skína og helmingur þeirra kemst inn í skólann. Morguninn hófst á croissants og kaffi á svölunum. Bob Marley á fóninum og enn fiðrildi í maganum. Í aðalsal skólans hittum við síðan fyrir hana Stine frá The Danish Institute of Untamed Creativity. Við fengum útrás með dans, söng og öskrum. Eftir æfingarnar sagði Stine okkur að við ættum barasta öll heima í dansskóla, svoddan snillingar væru við;-)
Síðan var okkur skipt í sjö hópa. Ég lenti í alþjóðlega hópnum. Með mér í hóp voru Svanhvít frá Íslandi, Anders og Rowan frá Danmörku, Gaz frá Englandi, Zulma frá Kólumbíu, Maria og Alex frá Mexíkó og Anna Lena og David frá Þýskalandi. Allir hóparnir fengu sama verkefnið; að koma með nýjar og ferskar hugmyndir um White Meat City á Vesterbro en planið er að gera þann stað að miðstöð hönnunar og lista í Danmörku. Við höfðum 24 tíma til að útbúa kynningu um hvað við vildum gera til að laða að alls kyns fólk á þennan stað.
Hópurinn, sem samanstóð af ólíku fólki frá alls konar menningarheimum, small strax saman og hópfaðmlög voru tíð. Skuggar okkar í þennan tíma voru krakkarnir á fyrsta ári í skólanum en þau áttu að fylgjast með okkur til auðvelda valið á þeim sem kæmust inn. Þessar elskur höfðu því erfiða hlutverki að gegna að halda pókerfésum alla helgina.
Við gerðum alls konar verkefni inn á milli:
-Kynntum okkur fyrir framan hópinn.
-Björguðum 10 manns úr jarðskjálfta í San Francisco.
-Byggðum hús úr legókubbum án þess að mega tala saman.
-Útbjuggum kvöldmat fyrir hópinn með því að hlaupa út um allan bæ eins og brjálæðingar og reyna að fá frían mat. Það gekk að hluta til:-)
-Sátum í hring og ræddum um vinnuna okkar og hvernig hlutirnar væru að ganga, hverjir hefðu jákvæð áhrif á starfið og hverjir neikvæð. Það var erfitt.
Laugardagur:
Við mættum í skólann kl. 8 og framundan var svakaleg vinna. Við fengum að heyra það eftir daginn að við hefðum verið eins og eldfjall í fullri virkni. Eintómar sprengjur en eitthvað nýtt að myndast. Það var víst rifist um að fá að fylgjast með okkur.
Við unnum ótrúlega vel saman en auðvitað komu upp flækjur sem við urðum þá að leysa. Kynningin okkar átti að vera kl. 17 og klukkan 16.30 vorum við ekki hálfnuð með powerpoint kynninguna okkar og ekki einu sinni byrjuð á skriflegu tillögunni sem við áttum að skila eftir kynninguna. Kaldur sviti er svo mikið understatement, kaos líka. Þarna byrjaði eldfjallið að skíta á sig. Á undraverðan hátt tókst okkur þó að skila af okkur frábærri kynningu, stútfullri af skemmtilegum hugmyndum um White Meat City. Við fengum mjög jákvæð viðbrögð og spennufallið sem kom í kjölfarið var engu líkt. Eftir herlegheitin fengum við kampavín og knús. Um kvöldið fórum við síðan á klúbb, Chocolade Fabrikken, sem var einmitt stofnaður af Kaospilot. Þar drakk ég ótæpilega af kampavíni og skotum, ekki besta blandan en kvöldið var geggjað!!
Sunnudagur:
Þynnka og löng lestarferð.
Ég veit að þessi texti nær á svo takmarkaðan hátt að lýsa þessari mögnuðu helgi. Takið hann og setjið í þúsundasta veldi, þá tekst honum kannski að nálgast upplifun mína.
Ég setti inn nokkrar myndir frá helginni.
Ég elska ykkur!

17.4.2005
13.4.2005
Komin á áfangastað
Halló, elskurnar. Ég komst klakklaust til Danmerkur. Borgaði ekki yfirvigt enda var ferðataskan bara 21,5 kg. Hins vegar var handfarangurinn örugglega 30 kg. Var svo heppin að hitta Eyþór og Pálínu, vinkonu hans, við töskubandið og þau hjálpuðu mér með draslið. Svo var bara haldið heim til Ullu á Elmegade 23. Ég fékk mér smá rauðvín um kvöldið og svei mér þá ef ég var ekki bara rúllandi eftir tvö glös. En ég svaf líka vel.
Ég hef ekki farið í almennilega sturtu síðan ég kom hingað. Vatnsrennslið í sturtunni hennar Ullu er svo lélegt að ég gæti allt eins kreist blautan þvottapoka yfir hausnum á mér og fengið svipaða bunu og ég fæ úr þessum sad-excuse-for-a sturtuhaus. En nú er ég hætt að kvarta.
Ég fer til Árósa á morgun og inntökuprófin í skólann byrja kl. 9 á föstudagsmorgun. Mjög spennó. I'm gonna kick ass! Svo þegar ég kem aftur til Kaupmannahafnar flytjum við Katrín og svo þarf ég að finna mér vinnu. Einhverjar hugmyndir?
Pís át, elskurnar!

9.4.2005
Kamilla Stairmaster 2005
Ég er flutt út úr íbúðinni minni. Sit hér á SéstVallargötu 22 og hef áhyggjur á því hvernig í fjandanum ég eigi að komast með allt sem ég er búin að pakka til Danmerkur án þess að borga yfirvigt. Einhverjar hugmyndir?
Ég er búin að labba um hundrað ferðir frá 1. hæð upp á þá fimmtu með kassa í hönd. Rassinn orðinn einstaklega stinnur. Hugsa að mig dreymi stigann á Hringbrautinni í nótt. Fólk sem vinnur í loðnuvertíð dreymir loðnu, mig dreymir stiga.
Jæja, ég er þreytt. Get varla hugsað, hvað þá blibbað.

5.4.2005
Ég er að faaaaaaaaara...
Yes, sirree bob, á mánudaginn kemur fer ég til Danmerkur. Ég var að fá mjög skemmtilegan tölvupóst áðan þar sem mér er boðið að taka þátt í workshop-i sem er liður í ingönguferli í skóla sem heitir KaosPilot. Vííííí! Vinnustofan verður 15. og 16. apríl þannig að þið verðið að senda mér strauma þá!:-)
Fatamarkaðurinn gekk vel en ég verð nú að viðurkenna að ég bjóst við fleirum. Það voru tveir fullir ruslapokar af fötum eftir og hálfur poki með skóm. Ég sel það bara næst;-)
Um kvöldið fór ég út að borða með 11 föngulegum konum á framabraut á Maru. Við vorum þar frá 20-00.30 og borðuðum dýrindis sushi og sticks. Ótrúlega vel heppnað kvöld. Takk fyrir mig, elsku vinkonur! Þið eruð yndislegar!!!!!
Við Katrín erum komnar með íbúð á Dronning Olgas Vej 1 á Frederiksberg. Hún er víst æðislega fín og herbergið mitt á stærð við kústaskáp og veggfóðrað með safari mynstri. Haha. Vonandi kaupi ég mér stafræna myndavél í fríhöfninni og þá getið þið séð herlegheitin sem fyrst:-)
Jæja, elskurnar. Ég þarf víst að pakka heilli búslóð...
Þar til næst... allimaK
Getraunin. Hvað lag? Hver flytur?
If I had your love
You would be
What most inspires me.
Sacred soul
Fantasy
Brightest light
Guiding me on wings.
Þvílík textasmíði...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)